Beint í efni
Mínar Síður

Verslun/Lausasölulyf/Magalyf/
Omeprazol Actavis 20mg 14stk

Omeprazol Actavis 20mg 14stk

066862

Product information


Attachments


Description

Vöruupplýsingar

Omeprazol Actavis inniheldur virka efnið ómeprazól. Það tilheyrir flokki lyfja sem kallast prótónpumpuhemlar. Þeir verka með því að draga úr sýruframleiðslu magans.

Notkun

Mælt er með því að hylkin séu tekin að morgni.Taka má hylkin með mat eða á fastandi maga. Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni. Hylkin má hvorki tyggja né mylja. Þetta er vegna þess að hylkin innihalda húðuð korn sem hindra niðurbrot lyfsins í magasýrunni. Mikilvægt er að skemma ekki kornin. Nauðsynlegt getur verið að taka hylkin í 2-3 daga samfellt áður en einkenni batna.
Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 14 daga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Innihaldslýsing

Hjálparefni: Innihald hylkja: Sykurkúlur (súkrósi, maíssterkja, vatn), Metakrýlsýru-etýlakrýlatco-fjölliðu (1:1) dreifa, Hýprómellósi, Talkúm, Mannitól, Makrógól 6000, Títantvíoxíð (E171), Pólýsorbat 80 ,Tvínatríumfosfat, Natríumlárýlsúlfat, Hylkisskel (10 mg og 20 mg): Gelatína Vatn Títantvíoxíð (E171), Kínólíngult (E104), Hylkisskel (40 mg): Gelatína, Vatn, Títantvíoxíð (E171), Indigókarmín (E132)