Beint í efni
Mínar Síður

Verslun/Lausasölulyf/Magalyf/
Omeprazol Actavis 20mg 28stk

Omeprazol Actavis 20mg 28stk

050510

Product information


Attachments


Description

Omeprazol Actavis er ætlað til notkunar hjá fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít).

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá

Vöruupplýsingar

Omeprazol Actavis inniheldur virka efnið ómeprazól. Það tilheyrir flokki lyfja sem kallast prótónpumpuhemlar. Þeir verka með því að draga úr sýruframleiðslu magans.

Markaðsleyfishafi Actavis Group PTC ehf.

Notkun

Mælt er með því að hylkin séu tekin að morgni.Taka má hylkin með mat eða á fastandi maga. Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni. Hylkin má hvorki tyggja né mylja. Þetta er vegna þess að hylkin innihalda húðuð korn sem hindra niðurbrot lyfsins í magasýrunni. Mikilvægt er að skemma ekki kornin. Nauðsynlegt getur verið að taka hylkin í 2-3 daga samfellt áður en einkenni batna. Leitið til læknis ef sjúkdómseinkenni versna eða lagast ekki innan 14 daga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.

Innihaldslýsing

Omeprazol Actavis inniheldur virka efnið ómeprazól 20mg