Cetirizin STADA 10mg 100stk
010989
Product information
Attachments
Description
Vöruupplýsingar
Við árstíðabundnu eða stöðugu ofnæmiskvefi, eða til að draga úr einkennum langvinns ofsakláða af óþekktum orsökum. Cetirizin er andhistamín þ.e. það hindrar áhrif histamíns í líkamanum. Histamín er boðefni í líkamanum sem veldur ofnæmisviðbrögðum.
Notkun
Fullorðnir og unglingar 12 ára og eldri : 10 mg einu sinni á dag, sem ein tafla á dag. Börn 6 til 12 ára: 5 mg tvisvar á dag, sem hálf tafla tvisvar á dag. Börn: Ekki gefa börnum yngri en 6 ára lyfið, þar sem töfluformið býður ekki upp á viðeigandi skömmtun.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
