Loritin 10mg 30stk
002499
Product information
Attachments
Description
Vöruupplýsingar
Lóritín inniheldur 10 mg af virka efninu lóratadín sem tilheyrir hópi andhistamín lyfja. Andhistamín dregur úr ofnæmiseinkennum með því að koma í veg fyrir áhrif histamíns sem er framleitt í líkamanum.
Markaðsleyfishafi Actavis Group PTC ehf.
Notkun
Töfluna skal gleypa með glasi af vatni, með eða án máltíðar. Batni einkenni ekki innan 7 daga skal hafa samband við lækni. Sé þörf á að nota Loritín í lengri tíma en 3 mánuði skal hafa samband við lækni til að rannsaka hvort að einkenni séu ekki af völdum ofnæmis. Töflunni má skipta í jafna skammta. Lóritín er ekki ætlað börnum yngri en 2 ára nema að höfðu samráði við lækni.
Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar, varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á sérlyfjaskrá
Innihaldslýsing
Lóritín inniheldur 10 mg af virka efninu lóratadín Hjálparefni: Laktósi, Örkristallaður sellulósi, Maíssterkja, Magnesíumsterat
